BESTU PLÖTUR ÁRSINS 2009
Árið 2009 byrjaði með krafti og í raun fannst mér fyrri hluti ársins tónlistarlega betri en sá síðari. Raunar kom fátt eitthvað massívt á óvart, en það er svosem alltaf eitthvað örlítið óvænt. Vindum okkur í þetta barasta.1. ANIMAL COLLECTIVE - MERRIWEATHER POST PAVILLIONTvímælalaust og umbúðalaust besta plata ársins. Hún var ótrúlega ávanabindandi en umleið kom hún á óvart í hvert sinn. Óþrjótandi uppspretta hljóma, tóna og takta. Frumkraftur sveitarinnar er ótæmandi og hljómfegurðin óumdeilanleg. Frá byrjun var ekki aftur snúið. Ferðalagið var ævintýralegt, gæsahúðahvetjandi og hreint konfekt fyrir eyrun.Animal Collective - Lion In a Coma2. SUNSET RUBDOWN - DRAGONSLAYERÞessi maður er ekki hægt. Spencer Krug er besti lagasmiður indiesenunnar vestanhafs og saman með konu sinni hefur honum tekist næstum því að skapa sitt besta tónverk til þessa. Stórfengleg plata sem ómaði einna mest í eyrum Zúra Rjómans þetta árið.Sunset Rubdown - Nightingale / December Song3. FEVER RAY - FEVER RAYKarin Dreijer skapaði undarlegustu poppplötu ársins 2009 og í leiðinni eina þá drungalegustu sem um getur. Elektrónísk epísk schnilld sem heltók huga manns og leiddi hann í dimmustu einbýlishús í Lundi. Annarlega skandínavísk og fögur.Fever Ray - Dry And Dusty4. POLVO - IN PRISMGömlu kempurnar. Sko þá. Vitanlega var ég skíthræddur að þeir myndu klúðra þessu en fljótt var sú hræðsla ástæðulaus. Plata þeirra gefur þeim gömlu ekkert eftir. Eitrað hrátt indie rokk með ógreinilegum metal áhrifum. Meistarar síhverfandi gítarflétta.Polvo - Beggar's Bowl5. DIRTY PROJECTORS - BITTE ORCAAbstrakt popp með helsteiktum takti. Óvenjulegt vissulega en samt sem áður ákaflega grípandi og heillandi. Raddanir, óvæntar fléttur og vangefnar trommur einkenndu eina óvæntustu plötu ársins og gaf sveitin Xiu Xiu ekkert eftir, þó þær séu í raun og veru ólíkar.Dirty Projectors - Cannibal Resource6. SWAN LAKE - ENEMY MINESúpergrúbba eins og hefur sagt milljón sinnum áður. Að mínum dómi bestu lagasmíðarnar eftir Spencer Krug en Dan Bejar sýndi einnig tilþrif áður ókunn.Swan Lake - Spider7. THE ANTLERS - HOSPICEEin af fegurstu plötum ársins. Lágvær með geigvænlegum hæðum þess á milli. Gríðarlega gæsahúðahvetjandi, tilfinningarík og eyrnavæn. Hljómurinn sem kappinn náði að skapa er ómótstæðilegur. Sveit eða tónlistarmaður sem mikilvægt er að fylgjast vel með í náinni framtíð.The Antlers - Bear8. CLUES - CLUESAfsprengi Unicorns og frá Montreal. Hálfgerð andstaða Islands (hitt afsprengið af The Unicorns). Frumraun þessarar sveitar tók tíma að seitlast undir eyrnamerginn en þegar það tókst var ekki aftur snúið. Verð að viðurkenna að ég missti algjörlega af þessari sveit á árinu, fyrr en komið var í byrjun desember. Minnir sterklega á Neutral Milk Hotel en hefur tilraunakenndari yfirbragð. Gómsætt og gríðarlega hressandi.Clues - Remember Severed Head9. JAPANDROIDS - POST-NOTHINGByrjun þessarar plötu segir allt. Kyngimagnað gítarsánd sem er einkenni hennar byrjar herlegheitin og síðan yndislegar trommur einhversstaðar í bakgrunni. Japandroids blandar indierokki við effectaþungt shoegazing rokk og post-rock frá 90's. Afar einföld plata, geigvænlega kraftmikil og frábær endurminning um leið.Japandroids - Wet Hair10. BEAR IN HEAVEN - BEAST REST FORTH MOUTHÖnnur plata þessarar sveitar kom mér í opna skjöldu. Grunsamlega framúrstefnuleg þar sem ægir öllu saman. Krautrokk, indie og shoegaze. Fáránlega kraftmikil og hljómmikil. Hreinn unaður fyrir eyrun.Bear In Heaven - Ultimate SatisfactionRestin...í engri sérstakri röð.The xx - The xxApe School - Ape SchoolBill Callahan - Sometimes I Wish We Were An EagleGrizzly Bear - VeckatimestWashed Out - Life Of LeisureNeon Indian - Physic ChasmsEdward Sharp and the Magnetic Zeros - S/TLocal Natives - Gorilla ManorSonic Youth - Sacred EternalThe Horrors - Primary ColoursWoods - Songs Of ShameSurfer Blood - AstrocoastCass McCombs - CatacombsAtlas Sound - LogosThe Flaming Lips - EmbryonicSmith Westerns - Smith WesternsVil þakka ykkur fyrir að kíkja hingað inn af og til og um leið óska ykkur alls hins besta á nýju ári. Takk fyrir 2009. Thank god it's over.
read more »
